Þjónustan
Kokteila Kóngurinn færir kokteilbarinn í veisluna þína. Við sjáum um kokteilana, undirbúninginn, þjónustuna og allt sem því fylgir.
Þú þarft bara að njóta kvöldsins.
KOKTEILAR FYRIR YKKAR TILEFNI
Við bjóðum upp á allt frá klassískum kokteilum sem allir þekkja og elska yfir í drykki sem eru hannaðir sérstaklega fyrir þinn viðburð.
Langar þig í eitthvað einstakt? Við hönnum sérsniðinn kokteil með þér út frá þínum smekk, tilefninu og stemningunni.
VIÐ MÆTUM MEÐ BARINN
Við mætum með allt sem þarf til að bera fram kokteilana.
Hráefni · Glös · Klaki · Skreytingar · Baráhöld · Undirbúningur · Þjónusta
EINKAVEISLUR
Afmæli, heimapartý og önnur tilefni. Sérsniðin kokteilþjónusta fyrir þína veislu.
GÆSANIR & STEGGJANIR
Kokteilbar eða kokteilnámskeið sem verður hluti af dagskrá kvöldsins.
FYRIRTÆKI & VIÐBURÐIR
Sérsniðin kokteilþjónusta fyrir fyrirtækjapartý, opnanir og stærri viðburði.
GERUM VIÐBURÐINN EFTIRMINNILEGAN
Segðu okkur frá viðburðinum, við sjáum um kokteilana.